
Sveinn Tryggvason
Sveinn Tryggvason hefur unnið við rekstrarráðgjöf og stjórnun síðan árið 2000 og tekið þátt í fjölmörgum og margþættum stjórnunar- og ráðgjafaverkefnum innanlands sem utan. Eftirfarandi eru nokkur þeirra verkefna og starfa sem hann hefur tekið þátt í:
- Ráðgjöf vegna einkavæðingar Símans. Gerð rekstrarlíkans og virðismat. Gerð útboðsgagna (prospectus), fjárfestakynningar og þáttaka í samningaviðræðum.
- Ráðgjöf vegna stofnunar og fjármögnun FARICE vegna lagningar á nýjum sæstreng.
- Rekstrarráðgjöf og kostnaðargreining fyrir Orkuveitu Reykjavíkur.
- Virðismat á stærstu fjarskiptafyrirtækjum landsins.
- Framkvæmdastjóri yfir Stjórnun viðskiptaferla (e. Business Process Management) hjá Símanum.
- Forstöðumaður Eignarhluta hjá Símanum með ábyrgð á dóttur og hlutdeildarfélögum.
- Stjórnarseta í Trackwell, Já, SkjáEinum, Tæknivörum, Anza og fleiri félögum.
- Fjölbreytt stefnumótunar og skipulagsverkefni sem ráðgjafi, stjórnandi og stjórnarmaður.