Jónatan Smári Svavarsson
M.Sc. próf í rekstrar- og hagverkfræði og B.Sc. próf í vélaverkfræði frá Álaborgarháskóla. MBA frá Háskólanum í Reykjavík.
Jónatan Svavarsson hefur starfað sem framkvæmdastjóri og ráðgjafi síðan 1989. Eftirfarandi eru nokkur þeirra verkefna og starfa sem hann hefur sinnt:
- Almenn ráðgjöf, áfallastjórnun, stefnumótun, greiningarvinna, mótun og stofnun fyrirtækja.
- Greining og stuðningur við stjórnendur í Borgarnes Kjötvörum 1999 og 2003.
- Greining, ráðgjöf og stuðningur við umbreytingu á birgðahaldi og tengingu allra veitna Orkuveitu Reykjavíkur við sameiningu veitufyrirtækja Reykjavíkurborgar og nágrannasveitarfélaga 1999-2001.
- Greining, ráðgjöf, umbreyting á og rekstur á ljósleiðaraverkefnum, Orkuveitu Reykjavíkur 2003-2006.
- Greining og aðgerðir í TF-Húsum á Egilsstöðum, lokun á fyrirtæki og flutningur verkefna í samvinnu við VBS Fjárfestingabanka.
- Ýmis önnur ráðgjafaverkefni, t.d. á sviði stefnumótunar, verkferlagreiningar, stjórnunar og endurskipulagningar, m.a. fyrir orkufyrirtæki, sjávarútvegsfyrirtæki, framleiðslufyrirtæki og þjónustufyrirtæki.
- Reykjagarður. Áfallastjórnun og mótun fyrirtækis.
- Slippstöðin á Akureyri hf. Áfallastjórnun, mótun fyrirtækis og verkefnaöflun.
- Hýsing hf., stofnun og uppbygging hýsingarstarfsemi.
- PricewaterhouseCoopers á Íslandi (áður Hagvangur og Coopers & Lybrand). Rekstrarráðgjafi og meðeigandi (partner). Áhersla á stefnumótun, skipulag og virka þátttöku í rekstri fyrirtækja og áfallastjórnun.
- Kælismiðjan Frost hf., framkvæmdastjórn. Sameining félags með tvær starfsstöðvar og umbreyting þjónustuverkstæðis í tækni- og iðnfyrirtæki.
- Softis hf., framkvæmdastjórn. Verkefnaöflun.
- Marel hf., framleiðslustjóri. Mótun, uppbygging og stjórnun framleiðslu fyrirtækis í miklum vexti og hraðri þróun.